Það er eitthvað við andrúmsloftið í Skagafirði. Það er eins og tíminn hreyfist örlítið hægar hérna, á þessum sögulegu sléttum í tignarlegum fjallasal. Fyrir þá sem vilja upplifa Ísland án þess að flýta sér, og kynnast samfélaginu inn að kjarna, er algjörlega nauðsynlegt að staldra við í Skagafirði.
Menningararfur að morgni.
Hér drýpur sagan af hverju strái. Hér er sögusvið átakalegra Íslendingasagna, svo sem Grettissögu og Sturlungu. Hér er Hóladómkirkja og saga Hólabiskupa, saga trúarátaka og átaka milli hins veraldlega valds og kirkjuvalds. Auk þjóðsagna á við söguna um Miklabæjar-Solveigu, Galdra-Loft og svo fjölmargra fleiri. Hér stóð Stephan G, Klettafjallaskáldið og orti: „þó þú langförull legðir sérhvert land undir fót, ber þitt hjarta og þinn hugur samt þíns heimalands mót“ Hér getum við gengið inn í torfbæi og torfkirkjur og fundið lyktina af þurrkaðri mold, þar sem lágt er til lofts og við upplifum umhverfið sem einkenndi líf forfeðranna. Skagafjörðurinn er staðurinn þar sem við finnum áþreifanlega fyrir seiglu íslensku þjóðarinnar. Drekkum svo kaffi í gömlu timburhúsi þar sem postulínið klingir og pönnukökur eru bornar fram af afkomendum skagfirskra madamma, með útsaumaðar svuntur í anda hins íslenska þjóðbúnings Sigurðar málara.

Kraftur í kyrrðinni
Stolt héraðsins er íslenski hesturinn. Það að finna taktinn í töltinu meðan horft er yfir víðáttumiklar árnar sem liðast um fjörðinn er hreyfing sem gefur orku en tekur hana ekki. Fyrir þau sem vilja horfa yfir fjörðinn er urmull af stuttum og þægilegum gönguleiðum um nærliggjandi hæðir og hálsa. Þetta er útivist þar sem verðlaunin eru margfalt meiri en áreynslan, á örfáum mínútum breytist sjónarhornið og brátt höfum við alla víðáttuna í fanginu. Tært fjallaloft, ilmur af lyngi og kjarri, fuglasöngur og lækjarniður. Þetta er augnablik kyrrðarinnar þar sem gott er að sitja í grasinu, finna vindinn leika um vangana og meðtaka tilfinningu sem aðeins náttúran getur gefið.
Veitingar og vellíðan
Matarkistan Skagafjörður er troðfull af hráefni bæði úr haga og hafi. Bragðið er ferskt og ósvikið, hvort sem það er sjávarfang, lambakjöt, grænmeti, mjólkurafurðir eða bakkelsi. Öll geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Sundlaugar og heitir pottar eru auðlindir sem heimamenn kunna vel að meta. Hvort sem þú velur sundlaug í hlíðinni, sundlaug með útsýni yfir fjörðinn eða náttúrlaug við fjöruborðið þá er vellíðanin sú sama. Að liggja í heitu vatni, draga að sér ferskt loftið og horfa á skýin líða hjá, er besta endurnæring sem hægt er að hugsa sér.
