Stundum þarf ekki meira en góðan félagsskap, nýtt umhverfi og skvettu af sköpunargleði til að hlaða batteríin. Við hjá Lóa Travel elskum að tengja saman konur og upplifanir, og í þetta skiptið liggur leiðin í Austur-Húnavatnssýslu. Skagaströnd og Blönduós geyma einstaka sögu kvenna – allt frá spákonum fortíðar til textíllistakvenna nútímans. Í gegnum svæðið liggur rauður þráður sagna af kraftmiklum konum sem létu til sín taka á eigin forsendum með hlýju, seiglu, mildi og innsæi. Þetta er ferðalag þar sem við fögnum hinum mjúka krafti sem býr í okkur öllum.
Spádómar og sögur á Skagaströnd
Við byrjum daginn á Skagaströnd, þar sem tignarlegt Spákonufellið vakir yfir bænum og geymir leyndardóma kvenna fyrri alda.
Í Spákonuhofi kynnumst við sögu Þórdísar spákonu, fyrsta nafngreinda íbúa Skagastrandar. Það er áhrifaríkt að stíga inn í þennan heim dularfullra spádóma og rýna í örlögin. Þórdís er táknmynd þess kvenkrafts sem treystir eigin áttavita og les í aðstæður af næmni. Við rýnum í sögurnar og finnum hvernig viska fortíðar veitir okkur stöðugleika í nútímanum. Kannski fáum við vísbendingu um hvað framtíðin ber í skauti sér?
Skagaströnd er orðin alþjóðleg miðstöð sköpunar. Þar dvelur listafólk hvaðanæva úr heiminum og sækir innblástur í íslenska náttúru. Hér ríkir andi sem hvetur okkur til að hugsa út fyrir rammann. Það er kraftur í því að þora að vera opin og skapandi í nýju umhverfi.

Þræðir og þæfivinna á Blönduósi
Eftir andlega næringu á Skagaströnd liggur leiðin á Blönduós, þar sem kvenorkan fær á sig áþreifanlega mynd í gegnum handverk, bæði í Heimilisiðnaðarsafninu og Textíl FabLab. Textíllist er list þolinmæðinnar og seiglunnar. Hvert saumspor, hver lykkja, hver þráður í vefnum er áminning um hvernig konur hafa í gegnum aldirnar byggt upp samfélög með samvinnu og stöðugleika. Hér mætist hinn mjúki kraftur ullarinnar og sá sterki vilji sem þarf til að skapa eitthvað varanlegt. Þráðurinn liggur frá safninu að nýsköpunarmiðstöðinni í Textíl FabLabinu, handverk formæðranna mætir takmarkalausum möguleikum framtíðarinnar; þar sem verklag og stafræn tækni renna saman.
Í hjarta Vatnsdalsins mætum við sköpunarkrafti sem sprettur beint úr náttúrunni. Í Listakoti Dóru finnum við hvernig listin verður að hýlegu griðastað, og hjá Tundra sjáum við dæmi um hvernig íslensk hönnun og náttúruleg efni mætast. Þessar konur sýna okkur hvernig má láta til sín taka með því að rækta eigið listfengi í takt við umhverfið.
Á leið okkar um héraðið stoppum við við Þrístapa, stað sem geymir eina átakanlegustu sögu kvenna á Íslandi. Hér mætum við sögu Agnesar Magnúsdóttur, sem var síðust kvenna til að vera tekin af lífi hér á landi. Þetta er sögusvið hinnar margverðlaunuðu bókar Náðarstundar (e. Burial Rites) eftir ástralska rithöfundinn Hannah Kent. Að standa á þessum slóðum gefur okkur tækifæri til að íhuga þá seiglu og þann hljóðláta styrk sem konur hafa þurft að sýna í gegnum erfiðar aðstæður í gegnum söguna. Saga Agnesar er áminning um mikilvægi þess að gefa rödd þeim konum sem sagan vildi þagga niður í.

Matur fyrir líkama og sál: Hýleiki í hverjum bita
Ekkert blómstrar án næringar. Við veljum veitingastaði sem endurspegla þennan mjúka kraft í viðmóti og matargerð, þar sem við hvílum okkur og njótum þess að láta stjana við okkur eftir dag fullan af upplifunum
Hjá Lóa Travel leggjum við metnað okkar í að gera hverja upplifun einstaka. Við sérsníðum ferðir fyrir hvern og einn hóp, hvort sem þið mætið sem vinkonuhópur, vinnustaður eða saumaklúbbur. Við lögum dagskrána að ykkar takti og áhugasviði svo úr verði ógleymanleg samvera á ykkar forsendum.
Leyfðu okkur að sjá um öll smáatriðin á meðan þú og þinn hópur njótið kraftsins, kyrrðarinnar og samverunnar.
Myndir frá Markaðsstofu Norðurlands