Það er eitthvað töfrandi við að rölta um elsta hluta Sauðárkróks, þar sem mætast saga verslunar, mannlífs og náttúra á notalegan hátt. Við bjóðum stutta en innihaldsríka gönguferð með leiðsögn um Lindargötu, Skógargötu, Nafir, Kirkjutorg og Aðalgötu, svæði sem einkennist af gömlum grónum trjágörðum og húsum með sem eiga sér sögu í hverjum kvisti. Það er eins og tíminn standi dálítið í stað þegar gengið er um þetta hverfi, sem reis í kringum aldamótin 1900.

Á Nöfunum er eitt besta útsýni Skagafjarðar, þar sem sést út á eyjar og langt inn til fjalla. Að standa þar með hafgoluna í andlitinu og útsýni yfir þennan bæ sem hrjúfrar sig upp að Nöfunum, meðan við fylgjumst með öflugu atvinnulífinu að störfum, sjávarútveginum á höfninni, byggingarverktökum og verslunarfólki minnir okkur á að Sauðárkrókur er ekki bara samansafn af fallegum gömlum húsum, heldur lifandi og kröftugt samfélag þar sem sagan og framtíðin mætast í hverju handtaki.

Við sérsníðum gönguferðirnar að þörfum þíns hóps, hafðu samband á [email protected] fyrir frekari upplýsingar.