Meginmarkmið með rekstri Lóu travel er að hafa jákvæð áhrif á umhverfið; náttúruna, menninguna, samfélagið og efnahaginn
Til að styðja við framtíðarsýnina byggir Lóa Travel á sjálfbærri, ábyrgri og nærandi starfsháttum til framtíðar. Horft er til efnahagslegra þátta, samfélagslegra og menningarlegra með áherslu á gesti, starfsfólk og heimafólk. Markmiðið er að ferðaþjónustan þróist í sátt og samlyndi við nærsamfélagið svo allir njóti góðs af.
Áætlunin miðar að því að samræma starfsemina Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og stuðla að jákvæðum, varanlegum áhrifum á samfélagið á staðnum
Umhverfisábyrgð – náttúran í fyrsta sæti
Markmið: Lágmarka umhverfisspor og stuðla að ábyrgri auðlindanotkun
Aðgerðir:
Við tökum þátt í og eigum frumkvæði að samfélagslegum samstarfsverkefnum sem snúa td að hreinsun nærumhverfis, ruslatýnslu og ruslaflokkun
Við forgangsröðum ferðum sem nýta samgöngur á við göngu, hesta og hjól. Þegar flytja þarf gesti eða farangur notum við rafbíla ef kostur er og leitumst við að samnýta ferðir til að minnka kolefnisspor.
Við fylgjum „leave no trace“ reglunum. Gestir eru færddir um viðkvæman gróður og náttúru
Við hvetjum til noktunar á fjölnota vatnsbrúsum og nestisboxum eftir fremsta megni. Við leitumst eftir því að lágmarka notkun einnota umbúða. Einnota umbúðir skulu eftir fremsta megni vera niðurbrjótanlegar.
Samfélagsleg ábyrgð – styrkjum byggðalagið
Markmið: Stuðla að uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu, skapa störf og efla virðingu og samvinnu innan samfélagsins.
Aðgerðir:
Við leitumst við að eiga í samstarfi við lítil fjölskyldurekin fyrirtæki í nærsamfélaginu okkar, þegar kemur að gistingu, mat, afþreyingu og samgöngum
Við leitumst við að ráða leiðsögumenn úr heimabyggð, fólk sem þekkir vel til svæðisins, sögu þess og menningar. Með því viljum við tryggja að tekjur verði eftir heima í héraði og að menningararfinum sé miðlað af virðingu.
Við leggjum áherslu á ferðir utan háannatíma og á staði sem eru utan hefðbundinna ferðamannaleiða til að draga úr ofálagi á einstaka staði
Matur, menning og mannlíf
Markmið: varðveita og kynna menningararfleifð staðarins samhliða því að takast á við áhrif loftslagsbreytinga
Aðgerðir:
Við leggjum okkur fram um að velja veitingastaði sem leggja áherslu á hráefni úr héraði
Við leggjum okkur fram um að lágmarka matarsóun með hverjum þeim hætti sem við höfum tök á