Hjá Lóa Travel leggjum við metnað í að búa til ógleymanlegar samverustundir þar sem fræðsla, menning og náttúra mætast. Nýlega höfum við farið með nokkra hópa í heimsókn til Björgunarsveitarinnar, þar sem gestir fá að kynnast því ómetanlega starfi sem unnið er af sjálfboðaliðum í nærumhverfinu okkar. Það er eitthvað kraftmikið við að sjá tækin, heyra sögurnar og skynja þann mikla metnað sem einkennir þetta mikilvæga starf.
Að heimsókn lokinni förum við í notalegheitin á Kaffi Krók. Þar bíður okkar dýrindis súpuhlaðborð – fullkomið tækifæri fyrir hópinn til að setjast niður, ræða upplifun dagsins og njóta góðs matar í afslöppuðu umhverfi. Það er eitthvað við góða súpu og nýbakað brauð sem fyllir mann nýrri orku!
Okkur finnst dásamlegt að rölta saman niður í fjöru að máltíð lokinni. Kyrrðin við sjóinn, ferska loftið og fallegt útsýnið gefur hópnum tækifæri á að anda djúpt og njóta náttúrunnar áður en haldið er áfram.

Ef til vill langar hópinn þinn frekar til að rölta um Skógarhlíðina eða njóta útsýnis af Nöfunum.
Við sérsníðum ferðina fyrir þig! Hvort sem um er að ræða starfsmannafélög, vinahópa eða önnur félagasamtök, þá leggjum við áherslu á að sníða hverja ferð að þörfum og óskum hvers hóps fyrir sig.
Hafið samband og við skipuleggjum næsta ævintýri fyrir ykkur!